Færsluflokkur: Bloggar

Laugardagur 11. ágúst kl. 11.30 að staðartíma:

Fyrri æfingu dagsins var að ljúka og stelpurnar eru að hvíla, spila, versla og spjalla.

Í gær voru 2 æfingar, ein kl. 9 og ein kl. 15. Það er aðalþjálfari búðanna sem þjálfar okkar stelpur og með þeim í hópi eru 3 stelpur frá Rúmeníu. Eftir fyrstu æfinguna var þjálfarinn mjög ánægður með þær, sagði þær vera með betri grunn en hann hafði búist við og jafnari að getu. Þess vegna reiknar hann ekki með að færa neinar til og því líklegt að þær verði áfram allar saman í hópi.

Það er æft úti á malbiki. Við héldum af myndum á netinu að dæma að þetta væri gerfiefni, en þetta er bara málað malbik... En það kemur ekki að sök, tækniæfingar eru í yfirgnæfandi meirihluta og lítið um hasar og átök. Á milli æfinga er verslað, spilað, farið í körfu og gönguferðir.

Í gærkvöldi var þeim síðan boðið í bíó og bjuggumst við við bíómynd og poppi og kók, en þá var um að ræða klukkutíma amerískt myndband um varnarleik....og voru þær misþolinmóðar að horfa á það :-)

Hér eru um 250 krakkar og þar af 60 útlendingar, við, rúmenskir og rússneskir krakkar. Veðrið
er mjög þægilegt hér svona hátt uppi, svolítið heitt í sólinni, en svalt í skugga og á kvöldin.

Maturinn sem við fáum í búðunum er mjög óvenjulegur fyrir okkur og ekki alveg Siggi Halla að kokka
hann, en stelpurnar ná flestar að borða eitthvað og svo eru þær duglegar að borða pizzur, brauð,
jógúrt og ávexti þess á milli. Þar að auki drekkum við mikið vatn, en við þurfum að kaupa það allt
sjálfar. Einhver sponsor sem átti að sjá um vatn klikkaði, en hugsanlegt að rætist úr því á morgun
eða hinn að sögn.

Það er allt morandi í strákum hér sem finnst gaman að kíkja á stelpurnar okkar og þær þurfa svolítið að "berja frá sér" á stundum, en það er ekki vandamál og þær eru duglegar að virða útivistartíma og reglur búðanna. Reyndar til fyrirmyndar miðað við sum önnur lið hér. :-)


Bestu kveðjur úr Kopaonik!


Dagur 2 í Serbíu

Heil og sæl öll heima,

Þá er dagur 2 búinn (dagur 1 = ferðalag). Eftir 5 tíma rútuferð og pissustopp þar sem var bara pissað í gat í gólfinu (ein af mörgum nýjungum í þessari ferð :-)), komum við til Kopaonik um tvö leytið. Þetta er skíðaþorp hátt uppi í fjöllunum, þar sem eru um 10.000 manns á veturna, en á sumrin aðeins 500-1000. Hér eru nokkur hótel í kringum torg og á neðstu hæðunum eru markaðir
og búðir. Við erum á 4. og 5. hæð á einu þeirra.

Engin æfing var í dag, aðeins upplýsingafundur og kvöldmatur og svo fengu stelpurnar boli og stuttbuxur. Þær skruppu síðan í körfu nokkrum sinnum á útivöllunum og skoðuðu verslanirnar gaumgæfilega. Þær hörðustu voru búnar að versla fyrsta hlutinn áður en við gátum snúið okkur við :-)

Á fyrstu æfingunni verður skipt í lið eftir aldri og eftir þá æfingu eftir getu, þannig að hver og ein fái eins mikið út úr æfingunum og hægt er. Þetta er mjög einstaklingsmiðað og ef einhverja vantar að laga skotstílinn þá er hægt að fá sérþjálfun því, ef önnur þarf að bæta varnarhreyfingar þá er unnið með henni í því. Þetta eru einar bestu æfingabúðir sem hægt er að sækja heim og þótt við höfum allar fengið smá menningarsjokk yfir Serbíu sjálfri, þá heyrum við hér frá öðrum þjálfurum sem eru að koma aftur og aftur að þjálfunin sé toppur. Unglingalandsliðin í Serbíu hafa nýverið orðið  heims-meistarar í alls 5 flokkum og fengið brons í einum.

Stelpurnar eru spenntar fyrir æfingarnar og það verður spennandi að sjá hvernig þeim gengur.
Við munum svo leiðbeina þeim með símakort og sjálfsala á morgun, en það er víst sæmilega ódýrt að hringja þannig heim. Við munum finna út hversu "ódýrt" á morgun. Annars getið þið alltaf fylgst með blogginu og að sjálfsögðu hringt í símana okkar ef þið þurfið að ná í stelpurnar eða okkur fararstjórana.

Bestu kveðjur frá okkur öllum!


Komin til Serbiu

Hallo allir heima,

nu erum vid a Hotel Serbia ad borda morgunmat. Lentum i gaer og allt gekk vel. Forum adeins nidur i bae og bordudum og kiktum sma i budir Smile. Bojan thjalfari tok a moti okkur og hjalpadi og fraeddi um Belgrad og aefingabudirnar. Mikid heitt her i Belgrad, eda um 30 gradur. Forum i rutu nuna kl. 8 og tha tekur vid 5 tima rutuferd i budirnar. Allar hressar og katar.

kvedja,

Anna Bjork 


« Fyrri síða

Um bloggið

Anna Björk Bjarnadóttir

Höfundur

Anna Björk Bjarnadóttir
Anna Björk Bjarnadóttir
Fjolnisstelpur i Serbiu
Maí 2025
S M Þ M F F L
        1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • Mæðgur
  • ...erbia_2_028
  • Horft yfir til Kosovo
  • Á einu hæsta fjalli Serbíu (2017m)
  • ...erbia_2_051

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (10.5.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband